
Smá umfjöllun um kvikmyndir sem ég hef séð nýlega… Stutt kvikmyndagagnrýni – ég nenni að skrifa mismikið, fer yfirleitt eftir því hvað mér dettur fyrst í hug – oft bara að hugsa upphátt.
Stjörnugjöf… já, stjörnugjöf er eiginlega svolítið bullshit – ég held að það sé mismikið bakvið stjörnur sem fólk gefur myndum. Hjá mér er það yfirleitt bara gut feeling – hversu skemmtileg/fyndin/spennandi/flott fannst mér myndin. Upplifunin.
Það er ekki eins og ég sé með einhvern ákveðinn skala/staðal eða tékklista – “já, flottur bílaeltingaleikur – 1 stjarna, töff byssubardagi – bætist við 1,5 stjarna…” ;) Síðan getur stjörnugjöfin oft verið svona plús/mínus 1-2 stjörnur.
Hlaðvarp um kvikmyndir
Það er vert að minnast á að ég og Björn erum með hlaðvarp um kvikmyndir sem við köllum Búnir með poppið. Það er hægt að fylgjast með okkur í gegnum Facebook, Twitter og Instagram – og svo auðvitað hlusta á þættina á Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts og öðrum stöðum þar sem fólk hlustar á hlaðvörp.
Sort list by: title | rating | view date ↓
June, 2013
-
2013-06-16 23:49
Fyndin. Hugljúf/feel-good mynd. Skemmtileg saga, þótt hún sé að vissu leyti formúlukennd. Ég er forvitinn að vita hversu mikið Google kom að gerð myndarinnar - í raun ágætis auglýsing/branding fyrir Google. Ég er að spá hvort þeir hjá Google hafi séð athyglina sem Facebook fékk í kringum The Social Network og þeir hafi viljað fá sína eigin mynd ;) Mér fannst skemmtilegt hvernig þau notuðu ýmsar Google vörur til að birta credit listann í lokinn.
0.3 -
2013-06-15 21:12
Fyndin vitleysa. Áhugaverð blanda; zombie action spennu rómantísk gamanmynd ;) Spennandi. Sérstakar/skemmtilegar persónur. Ég áttaði mig ekki strax á að þetta er svona smá zombie útgáfan af Rómeó & Júlíu...
0.3 -
2013-06-15 02:00
Fyndin vitleysa og fínn hasar. Ég var ekki alveg viss með þessa mynd fyrir hlé... var alltaf að bíða eftir meira action, meira fútti, meiri keyrslu. En eftir hlé breyttist þetta í bullandi svarta kómedíu :) Skemmtileg vitleysa - ágætis afþreying. Slatti af fínum leikurum í aukahlutverkum.
0.3 -
2013-06-05 00:05
Mjög spennandi. Skemmtileg saga. Töff trick. Fínasta afþreying.
0.3 -
2013-06-02 23:07
Skemmtileg vitleysa. Spennandi. Gott fjör. Fyndin. Ætti að slá í gegn hjá þeim sem fíluðu hinar myndirnar. En það er held ég bara gott að þetta er síðasta myndinn í seríunni - það væri líklega aðeins of mikið (aðeins of þreytt) ef það væru gerðar fleiri Hangover myndir.
0.3 May, 2013
-
2013-05-24 23:43
Gott action. Töff bílaatriði. Spennandi. Fínasta afþreying - maður á líka að horfa á þetta þannig, og ekki láta ótrúverðug atriði og þunnt handrit trufla sig of mikið ;) Myndin missti smá kraft/momentum á köflum - stundum ekki alveg nógu gott flæði.
0.3 -
2013-05-12 01:59Star Trek Into Darkness (2013)
Spennandi. Gott action. Að vissu leyti stórslysamynd - sprengingar, eyðilegging og læti. Ég hef gaman af svona sci-fi myndum - áhugaverðar pælingar varðandi hvernig heimurinn verði eftir X mörg ár. 3D effect-arnir voru smá kúl, sérstaklega credit listinn í lokinn. En ég var reyndar orðinn frekar þreyttur í augunum í lokinn, tekur á að horfa á 132 mín. 3D mynd ;)
0.3 -
2013-05-05 22:25
Skemmtileg vitleysa. Fyndin (á köflum alla vega). Fínasta afþreying. Ég hef alltaf gaman af mynum sem gerast í New York :)
0.3 April, 2013
-
2013-04-28 23:06
Skemmtileg mynd. Fyndin. Skemmtileg saga - góðar persónur. Flott - grafíkin leit vel út. Góðir leikarar.
0.3 -
2013-04-27 01:49
Rosalegt action. Rosaleg spenna. Rosaleg keyrsla. Rosalega góðir leikarar. Rosaleg mynd. Magnaðar tæknibrellur. Dúndrandi skemmtun. Þessi Marvel heimur er magnaður - alltaf að tengjast meira og meira og bætast við fleiri myndir... Það var vissulega slatti af product placement (vörulaum) eins og gengur og gerist í svona risastórum myndum - en mér fannst áhugavert að sjá SpeedTest.net þarna, kom mér á óvart :) Fyrir þá sem hafa áhuga á því þá er atriði eftir credit-listann - Ekkert must-see, en smá skemmtilegt.
0.3 -
2013-04-21 22:38
Hörku spennumynd. Góð keyrsla og töff action/stórslysa atriði. Fullt af fínum leikurum. Reyndar nokkrar holur í handritinu (svona "Af hverju gerðu þeir þetta svona?"/"Af hverju gerðu þeir þetta ekki svona?") - en óþarfa að stressa sig of mikið á því með svona poppkorns-myndir ;) Vel gert hjá Katrínu Benedikt að skrifa handrit fyrir svona risastóra mynd.
0.3 -
2013-04-20 01:12
Mögnuð mynd! Rosalega spennandi - sérstaklega Osama bin Laden atriðið. Intense. Töff tónlist. Frekar löng, en samt kúl. Góðir leikarar. Vel leikstýrð mynd, leit mjög vel út.
0.3 -
2013-04-06 23:32
Mjög spennandi - magnaður thriller. Fínasta handrit/plot. Mér fannst þetta vera töluverð ádeila á lyfjaiðnaðinn og kúltúrinn í kringum það að lyf séu lausnin við öllu. Vel leikstýrð, eins og má búast við hjá Steven Soderbergh. Fegurð. Góðir leikarar.
0.3 -
2013-04-04 23:51
Fínasta action mynd - fullt af töff atriðum. Nóg af sprengingum :) Góð keyrsla. Nokkur atriði sem voru sérstaklega töff í 3D - svona "Ó nei, það er byssukúla á leiðinni í áttina að mér!" ;)
0.3 March, 2013
-
2013-03-26 23:14
Hugljúf mynd :) Ekkert yfirþyrmandi væmin og nokkuð spennandi. Ágætis saga. Smá í lokinn reyndar sem mér fannst skemma smá heildarupplifunina. Fínasta stefnumóta-mynd.
0.3 -
2013-03-23 22:47
Mjög spennandi mynd. Gott action. Áhugaverð saga. Slatti af þekktum leikurum. Að vissu leyti formúlu-mynd (eins og margar aðrar), en vel framkvæmd. Góð keyrsla.
0.3 -
2013-03-18 00:42
Spennandi mynd. Intense. Drama. Fínasta action - sérstaklega í lokinn. Áhugaverðar persónur. Nokkuð gott handrit - sniðug saga.
0.3 -
2013-03-14 20:35
Skemmtilega flippuð og skrýtin/quirky mynd. Skemmtilegar persónur - skemmtilegt líka hvernig þær voru kynntar. Gaman hvað Amélie var með fjörugt ímyndunarafl :) Hugljúf og skemmtileg mynd.
0.3 -
2013-03-08 23:34
Fyndin mynd. Spennandi. Klassískt grín rugl. Melissa McCarthy er snillingur :) Gott stöff.
0.3 February, 2013
-
2013-02-28 22:42
Gott action. Að vissu leyti klassísk Die Hard formúla - vondir kallar, one-liners, byssur, sprengingar, bílaeltingaleikir... En mér fannst eitthvað vanta. Ég bjóst við meira. Handritið var frekar takmarkað. Die Hard 5 er fínasta afþreying samt sem áður.
0.3 -
2013-02-26 20:58
Fyndin. Dash rómantísk. Smá drama. Slatti af fínum leikurum. Ágætis saga/handrit/plot.
0.3 -
2013-02-24 22:01
Á ensku: Headhunters. Mjög spennandi. Gaman að sjá svona flottar skandínavískar myndir. Ágætis plot. Gott action. Nett rugluð og brútal á köflum.
0.3 -
2013-02-22 22:03
Mjög spennandi. Skemmtileg. Kúl special effects. Að vissu leyti klassískt handrit - alla vega brot sem maður kannast við ;) J.J. Abrams og Steven Spielberg eru gott teymi.
0.3 -
2013-02-09 23:59
Ágætlega fyndin mynd. Nett rugluð. Ágætis afþreying - léttmeti. Maður hefur séð þetta concept áður (Freaky Friday, et. al.). Svo er náttúrulega falleg lexía í þessu um lífið og hamingjuna - peningar eru ekki allt und zo weiter.
0.3 -
2013-02-07 22:17Hansel & Gretel: Witch Hunters (2013)
Ágætis splatter mynd. Fínasta action - smá kung-fu bardagar. Áhugaverðar græjur og vopn sem þau voru með. Nokkuð fyndin á köflum - stundum af því að þetta var svo extreme :) Ég var að fíla Edward :) Fínasta afþreying. Leikstjórinn og handritshöfundurinn, Tommy Wirkola gerði líka Dead Snow - maður sá alveg svipaða takt í þessum myndum (skrímsli og gore).
0.3 -
2013-02-02 23:38
Fyndin mynd. Nett rugluð. Samt eitthvað sem vantar... handritið hefði kannski mátt vera betra og persónurnar meira "solid". Jason Segel og Phyllis Smith stóðu sig eiginlega best.
0.3 -
2013-02-02 00:31
Algjör snilld. Spennandi. Gott action. Arnold Schwarzenegger er ennþá með þetta :) Mjög góður húmor. Virkilega fyndin á köflum - fullt af fínum one-liners. Góð blanda - action og húmor. Fullt af fínum leikurum.
0.3 January, 2013
-
2013-01-29 23:05For a Good Time, Call... (2012)
Fínasta indie mynd. Áhugaverð og skemmtileg saga. Fyndin. Krúttlegur indie bragur. Gaman að sjá Josh Ruben bregða fyrir (sem maður hefur verið að fylgjast með á Tumblr/College Humor).
0.3 -
2013-01-26 01:19
Kúl mynd. Töff. Spennandi. Fínasta action. Brútal. Nóg af ofbeldi. Flott myndataka. Fullt af fínum leikurum. Leit vel út - þau náðu alveg 1949 stílnum. Alla vega trúverðugt. Gott stöff.
0.3
← previous 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 next →
List generated by WP Movie Ratings.
Síðast uppfært 16. February, 2025
þú ert aldeilis fljótur að skrifa um American Gangster. My man, ég er sammála þér með myndina. Töff stöff.
Vei, fyrsta kommentið hérna :)
Já, maður reynir að hafa þetta eins ferskt og hægt er :)
Það er kosturinn við þetta setup – ég hendi bara upp einhverju stuttu review, skelli á þetta einhverjar stjörnur (bara svona gut feeling) og þá er það komið. Ekkert að tefja mig á óþarfa blaðri eða djúpum pælingum.
mér finnst of mikið af myndum hér með of litlum fresti – horfir of mikið á myndir
hehe… já, sorry – ég skal horfa á færri myndir ;) Væri ein á mánuði of mikið?
En þetta er svona – ég hata ekki að horfa á bíómyndir… I loves it :)
ein á mánuði ef hún er á bíórásinni
Já ég fór með alltof miklar væntingar á Max kallinn. Myndin var alveg töff en sagan samsvaraði sér alveg ferlega illa. Þetta lyktar eins og gömul skinka.
Öflugur að halda utan um myndirnar sem þú sérð! ;) Nice. Sammála Star Trek umfjölluninni. Frábær mynd! Og hei, líka sammála um Angels and Demons. Ólíkt Da Vinci Code fannst mér myndin betri en bókin.
Takk. Já, mér fannst kominn tími til að hafa smá yfirsýn yfir þær myndir sem ég horfi á þar sem ég horfi á örlítið fleiri en 2 myndir á ári ;)
Já, síðan var líka gaman að sjá í Angels & Demons hvað sumir hlutir voru allt öðruvísi en maður var búinn að ímynda sér þegar maður las bókina :)
Hot Rod: 10*?
Ég hefði smellt 8*.
Jú, skil þig – þegar ég horfði á hana aftur einn þá var þetta ekki alveg eins mikil snilld, en samt fáránlega fyndin. En þegar ég horfði á hana fyrst þá skemmti ég mér alveg konunglega – það var kannski bara stemmningin að horfa á þetta wit da boyz. 10 stjörnur þýðir alls ekki að mér fannst þetta einhver Óskarsverðlaunamynd…
En annars eru þessar stjörnugjafir engan veginn heilagar – oft bara nánast eitthvað skot út í loftið ;)
Jæja Nesi, ég er mjög spennt að lesa hvað þú hefur um Shutter Island að segja. Koma svo! Í bíó með þig! ;)
hehe, úff… bara pressa :) Já, ég er svona ennþá að vega og meta hvort ég ætli að sjá Shutter Island í bíó. En ætli maður verði ekki að tékka á þessu, Scorsese stendur alltaf fyrir sínu.