Jæja, verkefnið heldur áfram. Þetta eru 3 mánuðir af mér:
Ég ætla að reyna að halda þessu áfram í töluvert lengri tíma… alla vega ná þessu upp í 1 mínútu. Þegar ég bý til myndband á “Slow” stillingunni er 1 mánuður kringum 6 sekúndur. Þannig að ég þarf að safna í a.m.k. 10 mánuði.
Lagið sem ég er að nota heitir In The Pines og er með Supergood. Eitt af 6 lögum sem fylgja með Vimeo app-inu.
Smá viðbót: Já, síðan má nefna að síðasta myndin í myndbandinu var tekin í trailer park sem við enduðum óvart á í Kanada. Við ætluðum að fara á Peggys Cove og slóum það inn í GPS tækið. En við s.s. enduðum á Peggys Cove Trail ;) En það var bara mjög gott ævintýri :) Vorum að busla í þessu stöðuvatni, tékka á sveitinni og leika okkur í sólinni. Stoppuðum svo í Peggys Cove á leiðinni til baka til Halifax, sáum það við sólsetur og fínerí.
Sverrir Örn says
Ertu að fá hrukkur?
Hannes says
haha, já, finnst þér það? Ég veit það nú ekki alveg…
Ertu að meina á milli augabrúnanna? Það kemur nú yfirleitt bara þegar það er mikil birta og ég er smá að pýra augun ;)