AIR by Hrefna S.
Já, já, dúndur tónleikar. Eins og kom fram þá er Air ein af mínum uppáhaldshljómsveitum – virkilega sáttur með að þeir hafi komið hingað. Bjóst eiginlega við að ég myndi þurfa að fara á tónleika erlendis til að sjá þá.
Það var einhver norsk grúppa sem hitaði upp með söngkonunni Kate Havnevik í fararbroddi – ágætlega gaman af þeim, voru með nokkur hress lög. Kate var reyndar með svolítið “Bjarkar” takta, veit ekki alveg hvort það var eitthvað að hjálpa þeim.
Þar sem Air semur svona stúdíó-tónlist þar sem er verið að mixa saman ýmsum mismunandi hljóðum þá var það nokkuð áhugavert að sjá hvernig þeir fluttu þetta Live. Lögin voru mörg nokkuð frábrugðin því sem maður er vanur að heyra – en kom skemmtilega út, þeir voru oft með alls konar útidúra sem voru alveg að virka.
Þeir voru með fínt setup – Nicolas var örugglega með 7 mismunandi gítara sem hann var alltaf að skipta á milli og Jean-Benoît var með fullt af hljómborðum, synthesizers og ég veit ekki hvað og hvað í kringum sig. Þeir voru síðan með 3 aðra hljóðfæraleikara með sér. Það voru ljósa róbottar út um allt sem sköpuðu góða stemmningu. Síðan var ég alveg að fíla stjörnurnar í bakgrunninum – það var búið að þekja allt bakvið hljóðfærin með teppi eða einhverju með litlum perum á sem voru oft í takt við tónlistana.
Veit ekki hvort það sé eitthvað Frakka dæmi en þeir voru gífurlega hógværir. Síðan létu þeir klappa sig upp tvisvar sem var alveg að vekja góða lukku. Síðasta lagið var örugglega kringum 7 mínútur þar sem þeir voru bókstaflega að spila af fingrum fram (ég held að ein ástæðan fyrir því var að einn synthesizer-inn var eitthvað að klikka og þeir voru bara eitthvað að leika sér á meðan það var verið að laga hann).
Þetta var náttúrulega hluti af Pocket Symphony túrnum þannig að þeir voru aðallega að taka lög af þeirri plötu en skelltu inn á milli vinsælum slögurum af hinum plötunum þeirra. Þannig að maður fékk að heyra lög eins og Cherry Blossom Girl, Don’t Be Light, Talisman, Sexy Boy, Kelly Watch the Stars, Surfing On A Rocket og önnur lög sem ég man ekki alveg í augnablikinu.
Hérna eru 2 hress tóndæmi af plötunum “10 000 Hz Legend” og “Talkie Walkie”:
Don’t Be Light
Alpha Beta Gaga
Önnur mynd frá tónleikunum:
YA 7902 by Eythor.
Bjössi says
Mér fannst þessir tónleikar hundleiðinlegir!! Ég var heima með gubbupest og sú sem ætlaði að kaupa miðann af mér kom aldrei að ná í hann. Þannig að ég tapaði 3.900 kr. á þessu.
Hannes says
Nú, nú, það var nú ekki skemmtilegt. En það verður vonandi hægt að bæta það upp með geðveikum tónleikum í næstu viku.
Bergur says
Ég einmitt var geggjað spenntur fyrir þessum tónleikum þangað til að ég fattaði auðvitað að það yrði takmarkað af Moon Safari og mun meira frá Pocket Symphony.
Þannig að ég lét mér nægja að downloada Air – Live from Vienna ;)
Hannes says
Jamm – þeir tóku nú samt alveg 3-4 lög af Moon Safari þannig að það var mjög flott. Sá diskur er náttúrulega bara snilld… gerast varla betri.