Maður ætti nú að vera að læra (þú ættir örugglega líka að vera að læra), en whatever…
Fann þetta video á jútjúbb – klippur úr snilldar þættinum Trigger Happy TV sem var sýndur á RÚV á sínum tíma:
Vildi rifja þetta upp af því að í tíma áðan var einhver kona ekki með á silent og það gjall þessi default Nokia hringing í símanum hennar.
Meira Trigger Happy TV stöff… (svona ef þið þurfið ekki að vera að læra)
Síðan var mér bent á þetta rugl – einhverjir vitleysingar í síma-búningum, rífa síma af fólki og stappa þá í klessu. Reyndar fáránlega lítil video, en sjokkerandi fyndið.
Bjössi says
Trigger happy TV er eitt það besta grínefni sem sést hefur í sjónvarpi. Ég vil nota tækifærið og þakka RÚV fyrir alla snilldar gamanþættina sem þeir hafa fært landsmönnum. Án efa það besta sem þeir hafa gert.
Annars er default nokia hringinin yndisleg. Hún yljar mér um hjartarætur. Þá veit ég að það eru fleiri en ég sem kunna ekkert á símann sinn.
maple says
það er til alveg stórkostleg útfærsla á þessari standard nokia hringingu – hún deyr svona í endan eins og hún sé á teipi sem brennur eða e-ð, þokkalega fyndið, langar í hana en nenni eiginlega ekki að leita.
ég ætlaði að kaupa triggerhappy þegar við vorum úti á sínum tíma en fann ekki í HMV
Ella says
Hahha ..Trigger happy Tv.. ahhh, good times!